| Forum Name | Topics | Posts | Last Post |
| Gönguhópur Samtakanna 78 |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Gönguhópur sumarið 2008 Gönguhópurinn í Elliðaárdalnum
Fyrsta ganga Gönguhóps Samtakanna ´78 verður mánudaginn 21. apríl.
Gönguhópurinn hefur færst sig um set og mun ganga í vor og sumar í Elliðaárdalnum á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30. Gengið er frá bílastæðinu við neðstu göngubrúnna.
Mestu máli skiptir að koma og vera með í skemmtilegum félagsskap og velja hraða sem hentar hverjum einstaklingi fyrir sig.
Sjáumst í Elliðaárdalnum á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30Langar þig til að hreyfa þig í sumar þá er tilvalið að slást í för með okkur stelpunum ekki satt.
Vilt þú koma með okkur í létta fjallgöngu í nágrenni höfuðborgarinnar ? Ef svo er hvert viltu fara ?
Komið endilega með tillögur að ferðum sem við getum skipulagt í sameiningu.
| 2 | 4 | on Jun 30, 2009, 5:56am by ddddyyyy in Hugmyndir |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Göngu- og hlaupaleiðir Hér eru nokkrar hugmyndir að göngu- og hlaupaleiðum í næsta nágrenni höfuðborgarinnar.
Ef þú veist um einhverja skemmtilega gönguleið/hlaupaleið skelltu henni þá á spjallborðið.
| 3 | 4 | on Sept 8, 2009, 7:14am by ddddyyyy in Helgufoss í Mosfellsda... |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Skráðu þig til að getað tekið þátt í umræðunni Til þess að geta tekið þátt í umræðunni þá verður þú að skrá þig sem notanda.
Þú velur þér notendanafn og lykilorð. Einnig er beðið um netfang og fæðingardag en mælt er með því að þú hakir við að það sjáist ekki á vefnum.
Þú getur sent öðrum notendum einkapóst (private message), blockerað einhverja notendur ef þess þarf, gefið upp msn netfang þitt.
Göngustjóri getur stillt umræðuvefinn á ýmsan hátt. Nú er vefurinn stilltur þannig að allir geta lesið innleggin en einungis þeir sem eru skráðir notendur geta lagt orð í belg Einnig er hægt að stilla þannig að einungis skráðir notendur geta séð og spjallað á ákveðnum þráðum.
| 1 | 5 | on Aug 11, 2009, 8:39am by ddddyyyy in Skráðu þig til að geta... |
| Spjall gönguhópsins sumarið 2007 |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Helgufoss í Mosfellsdal - Hvítasunnudagur kl. 13:30 2007 Hittumst við KFC í Mosfellsbæ kl. 13:30 og keyrum síðan saman inn í Mosfellsdal.
Ekið sem leið liggur upp í Mosfellsdal. Beygt til hægri inn á afleggjara rétt neðan Gljúfrasteins.
Gengið er upp með Köldukvísl í um 2 km eftir vegaslóða, stiklað er yfir ánna á steinum og síðan gengið að Helgufossi.
Umhverfi Helgufoss er náttúruperla alltof fáum kunn þar sem m.a. er álfakirkja auk rústa sels og svitahofs frá ofanverðri síðustu öld. Vegalengd 7 km. Hækkun óveruleg.
Mynd af Helgufoss http://www.flickr.com/photos/sveinn71/400535359/
| 1 | 5 | on Aug 12, 2009, 6:52am by ddddyyyy in Helgufoss á Hvítasunnu... |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Strigaskór, gönguskór, stafgöngustafir og göngustafir Komdu og gakktu með okkur Bara koma í góðum skóm og klæða sig eftir veðrinu
Ef þú átt stafgöngstafi þá er tilvalið að æfa sig með okkur. Það gengur hver á sínum hraða.
| 1 | 2 | on May 20, 2007, 10:51pm by Göngustjóri in Stafganga |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Hlaupahópur Samtakanna 78 sumarið 2007 Áhugasamir meðlimir í Samtökunum ´78 um skokk og hreyfingu hafa ákveðið að koma á fót hlaupaklúbbi með það að markmiði að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu þann 18. ágúst næstkomandi.
Bæði vanir og óvanir eru velkomnir. Mestu máli skiptir að koma og vera með í skemmtilegum félagsskap og velja hraða sem hentar hverjum einstakling fyrir sig. Flestir stefna á að hlaupa a.m.k. 10 km en hægt er að æfa fyrir skemmtiskokk (vegalengd 3 km), 10 km hlaup, hálft maraþon (vegalengd 21 km) eða heilt maraþon (vegalengd 42 km).
Sjáumst á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 við Vesturbæjarlaugina í hlaupagallanum og íþróttaskónum!
| 1 | 1 | on May 20, 2007, 5:44pm by Göngustjóri in Hlaupahópur Samtakanna 78 |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Gönguhópur Samtakanna 78 sumarið 2007 Gönguhópur Samtakanna ´78 hittist á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 við Vesturbæjarlaugina.
Gengið er í nágrenninu, eða farið í lengri gönguferðir út fyrir borgarmörkin. Mestu máli skiptir að koma og vera með í skemmtilegum félagsskap og velja hraða sem hentar hverjum einstaklingi fyrir sig.
Sjáumst við Vesturbæjarlaugina á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 í íþróttaskónum eða gönguskónum !
| 1 | 1 | on May 20, 2007, 5:52pm by Göngustjóri in Gönguhópurinn |
![[ ]](http://s2.images.proboards.com/off.gif) | Dagatal 2007 Kíktu á dagatalið þá sérðu hvar við göngum og klukkan hvað.
Göngustjóri setur inn upplýsingar ef gengið er annars staðar en á Ægissíðunni.
| 2 | 4 | on May 24, 2007, 1:28am by Göngustjóri in Til þess að geta séð d... |